07.03.1946
Efri deild: 79. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1295 í B-deild Alþingistíðinda. (2219)

32. mál, búnaðarmálasjóður

Páll Hermannsson:

Herra forseti. Ég ætlaði ekki að fara að ræða þetta frv. Ég vildi aðeins benda hæstv. forseta á, að þetta mál er töluvert deilumál, og þótt enginn hafi kvatt sér hljóðs, þá eru ýmsir, sem mundu hafa viljað taka til máls, sem eru ekki á fundinum. Vildi ég mælast til, að málinu yrði frestað.