13.04.1946
Neðri deild: 109. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1368 í B-deild Alþingistíðinda. (2304)
149. mál, virkjun Sogsins
Frsm. (Sigurður Thoroddsen) :
Herra forseti. Hvað viðkemur ræðu hv. þm. V.-Sk., þá birtist áhugi hans í þessu máli furðu seint. Ég vil taka það fram, að hér er ekki um að ræða neinar stórbreyt. á frv. og þær breyt. voru nú einmitt ræddar hér í þessari hv. d. og samþ. hér gegn n. þeirri, sem fjallar um málið, en þrátt fyrir það var þetta samþ. hér í d. Að breyt. sé stórvægileg er misskilningur, en hér er aðeins um að ræða setningu, sem fáir vilja fella og er um, að ef Sogið verði virkjað, þá eigi ríkið að gera það, nema samið sé um annað. Þessi varnagli er eðlilegur. T. d. er aukin virkjun var fyrirhuguð í Soginu 1942, þá skrifaði bæjarstj. Reykjavíkur ríkisstj. og spurðist fyrir um það, hvort ríkið vildi virkja, og ríkið gaf það svar, að það væri ekki tilbúið til þess, og varð því úr, að Reykjavík framkvæmdi virkjunina upp á eigin spýtur. Þetta er því ósköp eðlilegt.
Meiri hl. iðnn. mælir með því, að frv. verði samþ. eins og það er nú.