12.04.1946
Neðri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (2518)

144. mál, Austurvegur

Samgmrh. (Emil Jónsson) :

Herra forseti. Við síðustu umr. hér í d. bárum við hv. þm. N.-Ísf. fram brtt. við þetta frv., sem náði ekki fram að ganga, en hún var borin fram vegna þess, að ég taldi tæplega unnt að framkvæma l. eins og þau eru. Ég hef því hugsað mér að bera fram aðra brtt. við þetta frv. nú við þessa umr., en er ekki undir það búinn, því að málið var til umr. í gær, og hefði því helzt óskað eftir því, að hæstv. forseti hefði séð sér fært að fresta málinu til morguns.