13.04.1946
Neðri deild: 109. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (2520)

144. mál, Austurvegur

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Við hv. þm. N.-Ísf. höfum leyft okkur að bera fram brtt. við þetta frv. á þskj. 781. Hún fer fram á, að tímatakmarkið verði miðað við 7 ár í stað 6 áður. Er það millivegur, því að áður gerðum við till. um 8 ár. Það hefði e. t. v. verið ástæða til að gera fleiri brtt., en við látum þetta vera svo, en vonum, að þessi brtt. verði samþ., því að hún gerir mögulegra að framkvæma lögin.