15.04.1946
Neðri deild: 110. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1542 í B-deild Alþingistíðinda. (2747)
181. mál, landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum
Frsm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Þetta frv., sem nú hefur gengið í gegnum Ed., hefur tekið þar smávægilegum breyt. Í fyrsta lagi hafa verið felld burtu ákvæði í 17. gr., sem ágreiningur varð um hér í Nd. við 3. umr. varðandi styrk til endurbyggingar í sveitum, sem ég benti þá á, að rak sig á önnur atriði frv. Í öðru lagi er gerð nokkur breyt. á 9. gr., sem ég hef ekkert við að athuga. Í þriðja lagi er breyt. á 11. gr., sem ég tel, að ekki sé til hins verra. Og loks er breyt. á 19. gr. Það er ákvæði um, hvernig skuli fara, þegar jörð kemur til söl,u. Eg tel þetta óþarft og eigi fremur heima í reglugerð.