15.04.1946
Neðri deild: 110. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1543 í B-deild Alþingistíðinda. (2752)

181. mál, landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum

Skúli Guðmundsson:

Ég fæ ekki séð, að það, sem hv. þm. A.-Húnv. hefur nú sagt, hafi inni að halda nokkur haldgóð rök. Hann sagði, að nýbýlastjórn hefði ekkert fé til umráða, en samkv. minni till. er stjórninni einmitt heimilað að veita úr sjóðnum til þessa. Enn fremur hygg ég, að þannig megi ganga frá reglum um þessar styrkveitingar, að nýbýlastjórn sé ekki sett í neinn vanda fram yfir það, sem verið hefur.