16.04.1946
Efri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1758 í B-deild Alþingistíðinda. (2763)

172. mál, nýbyggingar í Höfðakaupstað

Gísli Jónsson:

Ég vil þakka hv. frsm. fyrir þær upplýsingar, sem hann gat gefið. Þær eru næsta litlar og stangast mjög á við það, sem hæstv. ráðh. sagði. Það bendir allt til þess, að þeir, sem áttu að athuga málið, hafi ekkert vit á því og skilji ekki einu sinni það, sem við hinir sjáum þó, að hér er farið inn á braut, sem ekki er hægt að stöðva sig á, og að fleiri hljóta að koma á eftir. Að öðru leyti skal ég ekki ræða þetta frekar.