03.04.1946
Neðri deild: 101. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1594 í B-deild Alþingistíðinda. (2804)

141. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins

Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson.):

Þar sem hæstv. forseti leggur fyrir mann spurningar, verð ég að biðja um orðið til að svara. Ég hef að vísu ekki haldið því fram, að hæstv. forseti hafi verið að tefja fyrir málinu, en hins vegar virðist svo, sem hann álíti málið ekki neitt hærra sett en mörg önnur mál, sem hafa verið samferða á dagskránni og hafa fjallað um langtum óverulegra efni, en gengið þó framar á skránni að dómi hæstv. forseta.