23.04.1946
Efri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2035 í B-deild Alþingistíðinda. (2860)
104. mál, atvinna við siglingar
Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson.) :
Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. samgmrh. fyrir ummæli hans í þessu máli í heild, en í sambandi við þau benda honum á, að ég held, að hafi gætt nokkurs misskilnings um málið. Hann sagði, að kannske skipti það ekki miklu máli, hvor leiðin væri farin. Og vil ég í því sambandi benda honum á, að ef sú leið væri farin, sem talað er um í frv., þá er ekki á valdi ráðh. að tryggja nokkurn hlut, að þeir menn, sem fá réttindi, hafi þá þekkingu, sem þarf. Réttindin eru með samþykkt frv. gefin alveg takmarkalaus. Hver sá maður, sem getur sýnt, að hann hafi starfað eins og ákveðið er í l., þarf ekki að leita undanþágu eða neins leyfis. Honum eru gefin þessi réttindi, ef hann aðeins hefur hangið við þetta starf ákveðinn tíma, hvort sem hann hefur gert það betur eða verr.
Og í þessu liggur hin stóra hætta. Og það er hægt fyrir mann, sem hefur verið vélstjóri á trillu með 16 ha. vél í eitt ár, að krefjast réttinda til þess að mega fara með 250 ha. vél, ef hann sannar, að hann hafi gengið á hið minna námskeið við mótorvélskóla, og það námskeið er verkleg kennsla í 14 daga og bókleg fræðsla í 8 daga. Og hæstv. ráðh. getur ekki stöðvað að gefa þessum mönnum full réttindi til þess að fara með 250 ha. vélar, ef frv. verður samþ. Og það er það, sem ég vil stöðva. Ég vil ekki, að menn, sem starfað hafa í eitt ár þannig, geti fengið að fara með 250 ha. vél, sem er þá 375 ha. raunverulega. Þar að auki getur hver maður, sem bætt hefur við sig öðrum 17 dögum verklegrar kennslu og 21 degi í bóklegri kennslu, fengið rétt til þess að fara með 600 ha. vél, sem samsvarar 800 ha. vélum, sem er miklu vandasamara en með jafnstórar gufuvélar. Og þetta verður ekki stöðvað, ef frv. nær fram að ganga.
Ég tel hins vegar miklu minni hættu í því að veita undanþágur til góðra manna þennan tíma, til þess að stöðva ekki flotann. En þá hefur ráðh. það á valdi sínu og getur um það leitað ráða sérfróðra manna á þessu sviði.
Þá var atriði í ræðu hv. 1. þm. S.-M., sem var algerlega rangt, það eru einmitt útvegsmennirnir, sem geta ráðið miklu, vegna þess að þeir biðja fyrst og fremst um undanþágu fyrir ákveðinn mann, sem þeir hafa sannfært sig um, að hafi þessi skilyrði. Þeir fá ekki undanþágu nema enginn annar maður sé fyrir hendi, eða hann sé ekki nógu góður til þess að hægt sé að fela honum verkið, en það hefur aldrei skeð og mun aldrei ske. Þetta vildi ég láta koma mjög rækilega fram. Og ég hygg, að þetta komi fram af misskilningi hæstv. samgmrh., að hann ætti kannske einhverju að ráða um það, hverjir fengju þessi réttindi eftir á, ef þetta frv. verður að l., en svo er ekki. Og reynslan hefur sýnt, að þegar farið er að veita þessi réttindi, stöðvast aðsókn að skólum og námskeiðum í trausti þess, að haldið verði áfram að veita þessi réttindi til manna, sem ekki hafa lært.
Allur fjöldi þeirra manna, sem tóku próf síðastliðinn vetur, hefði ekki farið í skóla, ef þeim hefði dottið í hug, að þetta frv. yrði samþ., og það er ekki lítið atriði.
Viðvíkjandi ummælum hv. 1. þm. S.-M., að ég geti fellt mig við 1.–10. gr. frv., þá er það nokkur misskilningur. Ég get fellt mig við, að menn, sem hafa nú réttindi til þess að fara með 300 ha. vélar, fengju réttindi til þess að fara með vélar allt að 1200 ha., vegna þess að þeir þurfa ekki nema viðbótaræfingu. En að hækka hina upp í 600 ha. réttindi, get ég ekki fellt mig við, án þess að þeir ljúki verklegu og bóklegu námi eins og hinir. Í þessu liggur stóra hættan, og í þessu liggur misskilningur, sem ég vil leiðrétta.
Ég harma það, að ekki skuli vera fleiri hv. þm. hér inni til þess að hlusta á rök í málinu, því að þetta er miklu meira vandamál en menn gera sér ljóst. Og ég vil ekki vera með í því að samþ. þetta frv. og þannig verða valdur að því að flotinn verði eins og rekald um hafið, þar sem þörf er á fleiri björgunarskútum til þess að taka hann upp. Og það er bókstaflega stefnt að því með þessu frv. Og ég trúi ekki fyrr en ég tek á, að hæstv. samgmrh. beiti sér ekki fyrir því að fá þetta lagað og þessu afstýrt á þann hátt, að mínar brtt. verði samþ. og gerð verði gangskör að því að auka þekkinguna eins og hann talar um. En það er of seint, þegar búið er að veita 500–800 mönnum réttindi, sem eru ekki færir um að vinna þessi störf. Þetta vildi ég gjarnan, að hæstv. ráðh. athugaði.