08.12.1945
Sameinað þing: 14. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (290)
16. mál, fjárlög 1946
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram brtt. ásamt hv. 2. landsk. þm., og eru þær prentaðar á þskj. 322. Fyrri brtt. er rómv. V og er um lítils háttar hækkun á framlagi til tveggja vega í Austur-Skaftafellssýslu frá því, sem hv. fjvn. leggur til í brtt. sínum. Fyrri hluti þessarar brtt., liður 1, er um að orða 84. lið brtt. hv. fjvn. þannig að kalla hann Nesjaveg og hækka framlagið upp í 30 þús. kr. úr 20 þús. kr., sem fjvn. leggur til. Á undanförnum árum hafa aðeins verið lagðar fram smávegis fjárupphæðir í nýbyggingar í svo nefndan Innnesjaveg. En nú liggur fyrir, að aðalvegur í þessu héraði er Nesjavegur sjálfur, sem er orðinn gamall. Og þar eru sérstaklega tveir kaflar, sem þarf að endurbæta. Vegaverkstjóri, sem hefur haft þetta mál til umsjónar mörg undanfarin ár, hefur sérstaklega óskað eftir því, að það tækist að fá þessa fjárveitingu, sem við förum hér fram á í þennan veg, með það fyrir augum, að óhjákvæmilegt sé að endurbyggja tvo kafla hans á næsta sumri. Þá er 2. tölul. þessarar brtt. um það að hækka lítils háttar framlagið til öræfavegar, úr 15 þús. kr. í 20 þús. kr. Hér er aðeins um smáupphæð að ræða. En þessi vegur tekur yfir mjög langt svæði, og þar er mikið verkefni óunnið, bæði að halda áfram að leggja nýjan veg upp að Skaftafelli og svo á öðrum stöðum, þar sem vegagerðin er hálfunnin samanborið við það, sem áður hefur verið lagt að öðru leyti. Ég vil taka fram, að þó að við höfum leyft okkur að bera fram þessa brtt., er það ekki svo að skilja, að við vanþökkum hv. fjvn. það, sem hún hefur lagt til þessara mála. Mér er vel ljóst, að hv. fjvn. hefur unnið að ýmsu leyti vel úr því, sem fyrir hana hefur verið lagt. En hér er aðeins um smáupphæðir að ræða, sem ég vænti, að bæði hv. fjvn. og þingið í heild líti á með fullri sanngirni og verði við þeim óskum að samþ. þessar brtt. Það mun öllum ljóst, að boginn er ekki spenntur hér hærra en full nauðsyn er til.
Þá er á sama þskj. undir rómv. IX brtt. frá okkur hv. 2. landsk. þm. um brú á Holtakíl á Mýrum. Í brtt. hv. fjvn. er gert ráð fyrir að byggja eina brú í Austur-Skaftafellssýslu á næsta ári, það er brú á Laxá í Lóni, og hefur fjvn. þar að öllu leyti farið eftir till., sem komu frá mér og hv. 2. landsk. þm., það sem það nær, sem við vanþökkum á engan hátt. En hér er mikið verkefni fyrir hendi um brúargerðir í þessu héraði. Og þess vegna væntum við þess, að það verði einnig tekið til greina á hæstv. Alþ., að við getum fengið þá brú, sem brtt. á þskj. 322 hljóðar um, til viðbótar því, sem hv. fjvn. leggur til.