17.04.1946
Neðri deild: 113. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1828 í B-deild Alþingistíðinda. (2998)
194. mál, útflutningur á afurðum bátaútvegsins
Skúli Guðmundsson:
Hæstv. forsrh. gaf upplýsingar um, að gerðir hefðu verið samningar við hraðfrystihúsaeigendurna. En ekki var þess getið, hvort samið hefði verið við alla. Hæstv. ráðh. hefði átt að gefa nánari upplýsingar. Ef um frjálsa samninga er að ræða, þá er mér spurn, hvort til þess beri nauðsyn að setja ákvæði þau í l., sem hæstv. forsrh. kom inn á. Ég held því engan veginn fram, að verðjöfnunin sé óeðlileg. En mátti ekki framkvæma hana með samningum? Mér er spurn. Ég ætla, að hér sé um mjög nýstárlega aðferð að ræða. Það mun nýtt, að menn séu bundnir til þess með l. að úthluta eignum sínum til annarra. En svo er hér. Mér kemur í hug, hvort þetta höggvi eigi of nærri stjskr. okkar. Spurningin er, hvort ekki sé unnt á grundvelli hinna frjálsu samninga að ná settu marki. — Svo eru og önnur varhugaverð ákvæði í þessu frv., þ. e. um leigu skipanna, en það er ekki hægt að taka skip á leigu, nema lagaheimild sé fyrir hendi.