06.03.1946
Neðri deild: 81. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1884 í B-deild Alþingistíðinda. (3121)
107. mál, húsmæðrafræðsla
Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson) :
Mér fyndist rétt að athuga, hvort ekki væri rétt, ef kvenfélagasamband er ekki starfandi á einhverjum stað, hvort ekki ætti að láta kvenfélag, sem væri starfandi á svæðinu, fá sama rétt til þessa máls. Það mun til, að kvenfélög séu starfandi, þó að ekki sé um kvenfélagasambönd að ræða, t. d. er svo á Ísafirði.
Út af því, sem frsm. n., hv. 8. þm. Reykv., sagði, að ætlazt væri til, að þetta væru aðeins heimavistarskólar, þá er tekið fram í 10. gr., að skólarnir geti verið hvort tveggja, heimavistarskólar eða heimangönguskólar, enda tel ég eðlilegt, að gert sé ráð fyrir hvoru tveggja.
Ég læt þetta nægja, en 10. gr. sýnir, að það þarf að gera ýmis atriði frv. greinilegri.