13.04.1946
Efri deild: 106. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1943 í B-deild Alþingistíðinda. (3191)

139. mál, almannatryggingar

Frsm. meiri hl. (Haraldur Guðmundsson) :

Ég vona, að hv. þm. Str. og hv. 6. þm. Reykv. misvirði ekki við mig, þótt ég svari ekki spurningum,sem þeir báru fram, fyrr en við 3. umr. En út af síðustu ræðu hv. þm. Str. vildi ég segja það, að mér þykir gott, ef hann er nú allt í einu farinn að sjá það, að þjóðnýting er skilyrði fyrir almennri hagsæld og öryggi.