24.04.1946
Neðri deild: 119. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2015 í B-deild Alþingistíðinda. (3251)

139. mál, almannatryggingar

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson) :

Ég vildi í sambandi við þessar brtt. geta þess, út af brtt. við 42. gr., að óvíst er, hvað sú brtt. muni kosta. Ekki er gert ráð fyrir þeim útgjöldum, sem hún felur í sér. Þær bætur, sem þar um ræðir, munu hafa aukinn kostnað í för með sér. Till. er flutt í trausti þess, að þeir flokkar, sem að henni standa, útvegi fé til hennar.