25.04.1946
Neðri deild: 121. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2017 í B-deild Alþingistíðinda. (3261)

139. mál, almannatryggingar

Sveinbjörn Högnason:

Þar sem ég tel sjálft málið of gott í eðli sínu til að skapa slíkt misrétti milli manna í þjóðfélaginu og ég álít, að þessi aðferð geti orðið til að vinna málinu tjón, þá segi ég nei.