27.03.1946
Neðri deild: 96. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2090 í B-deild Alþingistíðinda. (3320)
142. mál, sameining Selfossbyggðar í eitt hreppsfélag
Sigurður E. Hlíðar:
Herra forseti. Ég tel ekki neina ástæðu til að koma inn á efni þessa máls.
Hv. frsm. hefur gert skýra grein fyrir afstöðu n. Um brtt. þarf ég ekki heldur að ræða efnislega. En hv. 1. þm. Árn. óskaði þess, að tillögumenn eldri brtt. vildu draga brtt. sínar til baka til þess að gera afgreiðslu málsins hér í hv. d. umfangsminni.
Ég á hér litla brtt. ásamt hv. 2. þm. Eyf., sem hv. 1. þm. Árn. hefur nú tekið orðrétt upp í sínar brtt. Ég er ekki svo kappsfullur, að ég endilega heimti, að þessi brtt. mín verði borin upp sérstaklega, úr því að hún er komin á pappírinn í þessari brtt. hv. 1. þm. Árn. Og ef ég stæði einn að þessari brtt., mundi ég verða við þessari ósk hv. þm. En þar sem hv. fyrri flm. brtt. minnar er fjarverandi úr bænum, veit ég ekki, hvort mér er leyfilegt að draga þessa brtt. til baka. En þar sem þessi brtt. er prentuð orðrétt á öðru þskj., þá verður hv. d. að skera úr um það, með hverjum hætti þetta ákvæði skuli koma inn í Alþt.