27.04.1946
Neðri deild: 128. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2096 í B-deild Alþingistíðinda. (3348)

142. mál, sameining Selfossbyggðar í eitt hreppsfélag

Frsm., (Páll Zóphóníasson) :

Síðan málið kom frá Ed., hefur n. ekki athugað það. Þótt ég telji breyt. þessa vera frv. til skemmda, mun ég sætta mig við hana. En ég vildi benda hæstv. ráðh, á, að ekki einungis þarf að kjósa nýjar hreppsnefndir í Selfoss- og Sandvíkurhreppum, heldur einnig í Hraungerðishreppi og Ölfushreppi. Ber til þess brýna nauðsyn að kjósa þessar n. á nýjan leik, eftir að skipti hafa farið fram. — Vænti ég þess, að hæstv. ráðh taki þetta til athugunar.