26.04.1946
Neðri deild: 122. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2105 í B-deild Alþingistíðinda. (3423)
248. mál, kosningar til Alþingis
Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson):
Herra forseti. Það hefur orðið samkomulag um það milli allra flokka að bæta úr þeim ágalla, að þeir, sem staddir eru utan lands, eiga nú ekki rétt á að greiða atkv. við núverandi kosningar. Ég skal ekki fjölyrða um þetta mál, en ætlunin er, að það gangi í gegnum þingið á þessum degi. Með því samkomulagi, sem orðið hefur um málið milli allra flokka, geri ég ráð fyrir, að svo geti orðið.