18.12.1945
Sameinað þing: 19. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í B-deild Alþingistíðinda. (349)

16. mál, fjárlög 1946

Forseti (JPálm) :

Ég skal taka það fram út af því, sem hv. frsm. sagði um villu í frv. á bls. 54, að hún er ekki inn komin vegna þess, að till. hafi verið borin upp, því að þetta var greinilega tekið fram, þegar afgreiðsla fór fram og undirskrift, heldur hefur villan skolazt með í sambandi við bókun, og hef ég gert ráðstafanir til þess, að þetta verði leiðrétt.