21.12.1945
Sameinað þing: 22. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2178 í B-deild Alþingistíðinda. (3586)

Þingfrestun

Eysteinn Jónsson:

Ég ætla að taka mér það leyfi að þakka hæstv. forseta fyrir óskir hans til handa okkur þingmönnum. Jafnframt vil ég leyfa mér — og ég vona, að ég tali í nafni allra hv. þm., — að þakka samvinnu við hann í forsetastóli á þessum hluta þingsins og óska honum góðrar heimferðar og gleðilegra jóla, og loks óska ég þess, að við megum hittast hér heilir aftur, þegar tilsettri þingfrestun er lokið.