01.04.1946
Efri deild: 96. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í C-deild Alþingistíðinda. (3783)
183. mál, lögreglustjórar í Fáskrúðsfirði og í Dalvík
Þorsteinn Þorsteinsson:
Fyrir fáum árum flutti hv. frsm. frv. um það, að lögreglustjóri væri skipaður í Hrísey í Eyjafirði. Ég held að þetta sé rétt. En ég vil spyrja hann, hversu það má vera, að ekki kemur fram nú krafa um það, þar sem komið er fram frv. um nýjan lögreglustjóra á Dalvík, sem þá þótti ekki eins tímabært og lögreglustjóri í Hrísey. Af þessu og fleiru virðist augljóst, að ekki sé búið að tæma óskir manna um nýja lögreglustjóra, og ég held það væri heppilegra að athuga þau mál í einu en að samþ. einn og tvo lögreglustjóra í einu í hvert skipti. Þegar maður lítur hér yfir nágrennið, þá dettur manni í hug a. m. k. þrjú kauptún, sem eru mannfleiri en þessi kauptún, sem nú eiga að fá sérstakan lögreglustjóra. Það má nefna Stokkseyri, Eyrarbakka, Ólafsvík og mörg fleiri kauptún, þar sem er engin búseta sýslumanna eða bæjarfógeta. En eins og horfir, má telja víst, að það komi krafa um lögreglustjóra frá þessum kauptúnum.
Nú sé ég að eftir launal. er þessum nýju lögreglustjórum gert að fá allt að 8400 kr. í laun á ári, og í frv. er einnig gert ráð fyrir því, að þeir fái aukalaun sem oddvitar. En ég vil spyrja: Hvernig hefur verið gert við þá lögreglustjóra, sem eru hliðstæðir þessum nýju mönnum, hreppstjórana? Þó að þeir séu ekki löglærðir, hafa þeir rækt starf sitt með prýði eins og þeir löglærðu. Það er ekki víst að menn séu betri framkvæmdastjórar fyrir kauptúnin, þó að þeir hafi embættispróf í lögum, heldur en menn, sem eru kunnugir þar. Ég held, að til skamms tíma hafi sami hreppstjórinn setið yfir Dalvíkurhreppi og Svarfaðardalshreppi til samans. En nú nægir ekki minna en að fá 9000 kr. mann yfir helming annars hreppsins. Nú verða hreppstjórar að sitja með 300–400 kr. laun um árið. Ef ríkið treystir sér til að fjölga svona embættismönnum, ætti það að gera betur við sína embættismenn, sem lægst eru launaðir, hreppstjórana. Um leið og aðrir starfsmenn ríkisins hafa verið stórhækkaðir, hafa þeir ekki fengið neina hækkun. Ef svo á að vera, að ýmis kauptún fái menn launaða með, hálft níunda þús. kr. á ári fyrir utan verðlagsuppbót, en hreppstjórar fá ekki nema 100–400 kr. í laun á ári, mun ég reyna að leggja minn skerf til þess að ráða bót á því misrétti, sem það virðist vera. Legg ég til, að þetta mál verði ekki látið ganga fram í þetta skipti og verði athugað, hvort nauðsynlegt er að fá slíka lögreglustjóra, og ef svo er, hvar þeirra sé helzt nauðsyn, svo að ekki þurfi ár eftir ár að vera að skjóta einum og einum lögreglustjóra inn, fyrir litla þörf.