03.04.1946
Efri deild: 98. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í C-deild Alþingistíðinda. (3795)

183. mál, lögreglustjórar í Fáskrúðsfirði og í Dalvík

Bernharð Stefánsson:

Ég hef áður sýnt það, að ég hefði eftir atvikum getað sætt mig við það, að mál sem þetta yrði afgreitt með rökst. dagskrá út af fyrir sig, ef hún hefði verið sæmilega orðuð og sýnt málinu sæmilegan velvilja. En þessi till. er með rangfærslur hreinar og beinar og staðhæfingar, sem ekki fá staðizt og sannanir liggja fyrir um. Þess vegna get ég ekki samþ. hana og segi nei.