04.03.1946
Efri deild: 76. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í C-deild Alþingistíðinda. (3804)

112. mál, jarðhiti

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

N. hefur athugað frv. þetta á allmörgum fundum, og varð hún ekki sammála um afgreiðslu þess. Nú á síðasta fundi, þegar n. afgr. það frá sér, voru að vísu ekki allir nm. mættir á fundi, en meiri hl. n. kom sér saman um að mæla með frv. með mjög lítilfjörlegri breyt. á orðalagi til skýringar. Einn nm., 1. þm. Eyf., ritari n., taldi málið þurfa frekari athugunar við og vildi ekki taka afstöðu til þess að svo stöddu.

Frv. þessu fylgir svo ýtarleg grg., að ég tel óþarft að fjölyrða um þetta frekar. Frv. þetta miðar aðeins að því að tryggja enn betur hagnýtingu jarðhitans og koma í veg fyrir, að þeim verðmætum verði spillt á nokkurn hátt.