21.11.1945
Neðri deild: 36. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í C-deild Alþingistíðinda. (3846)

96. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði

Flm. (Ásmundur Sigurósson) :

Herra forseti. Ég vildi aðeins leyfa mér að taka fram, að ég vænti þess fastlega, að frv. þetta fari til hv. sjútvn. og hún athugi það vel. Og jafnvel þó að það yrði ekki samþ. nú á þessu þingi, þá væri það stór vinningur fyrir málið, ef það fengist upp úr þessum flutningi frv., að rannsókn yrði gerð, til þess að málið gæti þá komið til meðferðar á næsta þingi.