11.02.1946
Sameinað þing: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (3858)

162. mál, hveraorka á Reykhólum

Flm. (Gísli Jónsson) :

Ég viðurkenni, að ég veit ekki um niðurstöður rannsóknanna, en ef þær liggja fyrir, þá ætti að vera hægt að fá um það upplýsingar. Till. mín fer einungis fram á, að þessar rannsóknir verði gerðar, en enn þá hafa engar boranir farið fram á Reykhólum. En það má ekki dragast, að rannsókn fari fram á þessu, svo að ekki sé farið að kosta upp á aðrar virkjanir þar, sem yrðu bæði kostnaðarsamar og ófullnægjandi.