15.03.1946
Sameinað þing: 33. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í D-deild Alþingistíðinda. (3891)

109. mál, vatnsveita Stykkishólms

Forseti (JPálm) :

Mér virðist, að hv. fjvn. hafi haft nægilegan tíma til afgreiðslu á þessu máli. En þar sem fyrir virðist liggja almennur vilji fyrir því, að þetta mál fái afgreiðslu, þætti mér skemmtilegast, að það gæti verið með samkomulagi. Skal ég því fresta afgreiðslu málsins að þessu sinni, en það verður tekið til afgreiðslu á næsta fundi í trausti þess, að þá verði komið álit frá hv. fjvn. En verði það ekki, verður málið þá tekið til fullnaðarafgreiðslu. Ég tek því málið af dagskrá.