28.03.1946
Sameinað þing: 35. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (3933)

195. mál, hveraorka á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Ég þakka hv. allshn. og hv. frsm. n. fyrir það, hversu vel og greiðlega n. hefur tekið á þessu máli. Og vænti ég þess, að þáltill. verði, eins og hv. allshn. mælir með, samþ. að þessari umr. lokinni.