12.04.1946
Neðri deild: 108. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í C-deild Alþingistíðinda. (3952)

135. mál, atvinnudeild háskólans

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Nú á þessum fundi var útbýtt nál. og brtt. á þskj. 772 um þetta mál. Ég skrifaði undir þetta nál. með fyrirvara og ætlaði að koma með brtt., en þar sem brtt. á þskj. 772 eru svo gerbreytandi, þá hljóta mínar brtt. að miðast við það. Mínar brtt. geta legið fyrir á næsta fundi, og vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann fresti umr. Ég mun hraða brtt. mínum, svo að málið tefjist ekki.