26.04.1946
Efri deild: 114. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í C-deild Alþingistíðinda. (4087)

135. mál, atvinnudeild háskólans

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðh., hver aukakostnaður muni verða af þessari lagabreytingu á næsta ári. Þetta kynni að vera í frv., en ég sé þetta ekki í nál. Nd., en þar er lagt til, að frv. verði samþ. með þeim breytingum, sem þar voru gerðar. Það kann að vera, að ég geti fundið þetta út í frv., en mér þætti vænt um, ef hæstv. ráðh. gæfi mér hér upplýsingar.