19.12.1945
Sameinað þing: 20. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 446 í B-deild Alþingistíðinda. (409)

16. mál, fjárlög 1946

Jóhann Jósefsson:

Mig stórfurðar á, að svona brtt. skuli fram koma frá öðrum en viðkomandi ráðh., því að hér er um opinberan starfsmann að ræða. Og þó að ég viðurkenni gott og mikið starf þessa manns, sem hér eru greidd atkv. um, og unni honum alls góðs, get ég alls ekki fellt mig við að greiða atkvæði um málið, þegar það er svona fram borið.