30.10.1945
Sameinað þing: 4. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í D-deild Alþingistíðinda. (4106)
51. mál, Þjórsárbrúin
Samgmrh. (Emil Jónsson) :
Herra forseti. Það er alveg rétt hjá hv. flm., að það hefur orðið sú gerbreyting á umferð og vegum í landinu yfirleitt, sem hefur valdið því, að þær brýr, sem byggðar voru fyrir aldamót og þó síðar sé, hafa ekki verið gerðar fyrir þann þunga, sem á þær hefur verið lagður nú. Vegamálaskrifstofan og vegamálastjóri hefur fylgzt með þessu og gert sínar ráðstafanir eftir því, sem hægt hefur verið. Því miður verður að segja það, að það eru fleiri brýr en Ölfusárbrúin og Þjórsárbrúin, sem svona hagar til um. En það er talsvert vandamál, hvernig úr þessu skuli leysa. Það hefur í bili orðið að grípa til þess að styrkja brýrnar eins og hægt hefur verið og um leið setja reglur um það, hversu mikinn þunga mætti flytja yfir þær í hvert sinn. Þetta skapar óþægindi að vísu, að takmarka þannig þungann, sem bílarnir mega flytja yfir brýrnar í einu, en við því er ekkert að segja, því að öryggið verður þó að ganga fyrir öllu.
Út af Þjórsárbrúnni vil ég sérstaklega segja það, að vegamálastjóri hefur haft það mál í undirbúningi nú undanfarin ár, bæði hefur hann haft eftirlit með brúnni og bætt í hana strengjum og reynt að styrkja hana, svo að hún þyldi sem allra mesta umferð, þó að ekki hafi verið hægt að komast upp í það hámark, að hún þoli alla bíla. Sömuleiðis hefur hann gert athuganir á því, hvernig hagkvæmast væri að gera þarna nýja brú, og hefur þegar verið undirbúið að verulegu leyti að flytja brúna nokkuð frá þeim stað, sem hún er nú, svo að vegarsamband að henni yrði greiðara. Allt þetta er í undirbúningi, og vil ég vænta þess, að sú n., sem fær málið til athugunar, hafi um þetta mál nána samvinnu við vegamálastjóra, hvernig á því skuli tekið og öðrum hliðstæðum málum. Því að þótt það sé ágætt að geta brúað Þjórsá á næsta ári, verður líka að taka tillit til annarra brúa, sem svipað eru settar eða kannske enn verr. Það eru til brýr í landinu, sem eru enn verr farnar og þola ekki eins mikinn þunga og Þjórsárbrúin. Hv. þm. sagði, að það gæti orðið afdrifaríkt, ef ætti að bíða eftir, að það færi eins með Þjórsárbrúna og Ölfusárbrúna, og þess óskar auðvitað enginn. En eins og ég sagði í upphafi, hefur verið reynt að bjarga þessu millibilsástandi með því að setja reglur um hámarksþunga, sem megi fara yfir brýrnar, meðan þær eru í því ástandi, sem þær eru. Ef þessum reglum hefði verið fylgt með Ölfusárbrúna, hefði ekki til þess komið, að hún hefði fallið niður, þess vegna er nauðsynlegt, að þeim reglum, sem út eru gefnar, sé hlýtt, þótt óþægilegar séu, því að þær eru ekki settar að óathuguðu máli; þær eru settar til öryggis lífi manna og limum, meðan ekki er hægt að fá fullkomnari lausn en þá bráðabirgðalausn, sem fengizt hefur. Ég er þess fýsandi, að þetta mál verði athugað mjög gaumgæfilega í n., og eins og ég sagði, einnig svipuð mál annars staðar á landinu, því að þau eru ekki síður aðkallandi, og getur vegamálaskrifstofan gefið upplýsingar um það. En það verður að segja um leið, að framkvæmd þessara mála um brúargerðir er eins og annað mjög dýrt verk, t. d. er álitið útlit fyrir, að Ölfusárbrúin kosti talsvert mikið á aðra millj. kr. Þess vegna verður þá um leið og samþ. er að hefjast handa um það verk, að sjá fyrir fjármunum til þess að greiða kostnaðinn. Að kostnaður við undirbúning verði greiddur úr ríkissjóði, er óþarfi að taka fram, því að allur kostnaður við undirbúning brúarbygginga hefur alltaf verið greiddur úr ríkissjóði, svo að sá undirbúningur þarf engum sérstökum útgjöldum að valda. Ég sé svo ekki ástæðu til að segja meira um þetta, en vænti þess, að málið verði gaumgæfilega athugað hjá hv. n.