19.12.1945
Sameinað þing: 20. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 446 í B-deild Alþingistíðinda. (411)

16. mál, fjárlög 1946

Sigurður Thoroddsen:

Með því að þetta er brtt. gerð við heimild um að greiða Matthíasi Einarssyni lækni prófessorslaun, þegar hann lætur af yfirlæknisstarfi við Landakotsspítala, og þó að hann hafi ekki starfað hjá ríkinu, fær hann prófessorslaun, þá sé ég ekki, að þessi maður, sem nú eru greidd atkv. um, eigi ekki að njóta sömu kjara, og segi ég því já.