27.04.1946
Sameinað þing: 41. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í D-deild Alþingistíðinda. (4119)

242. mál, þorpsmyndun á Egilsstöðum

Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson) :

Ég hef ekki getað orðið sammála hv. meðnm. mínum. Mér sýnist, að ekki sé hægt að forðast verðhækkanir á landi, þótt teknar séu á því eignarheimildir. Ég tel nauðsyn bera til, að málið sé betur athugað og tekið fastari tökum. Ég tel heldur ekkert aðkallandi að reisa þorp þarna, og mætti athugun því gjarnan bíða, þar til á næsta þingi. Ég legg því til, að rökst. dagskráin sé samþ.