27.04.1946
Sameinað þing: 42. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í D-deild Alþingistíðinda. (4216)

240. mál, svíþjóðarbátar

Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti. Eins og lýst var yfir við fyrri umr. málsins, hafði fjvn. til þess að flýta fyrir málinu tekið það fyrir án þess að því væri. vísað til hennar milli umr., og er árangurinn af því á þskj. 985. Ég hef þar engu við að bæta. Samkomulag varð milli fjvn. og flm. till. um, að hún verði eins og segir á þskj. 985.