08.03.1946
Sameinað þing: 32. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 348 í D-deild Alþingistíðinda. (4314)

97. mál, afnotagjald útvarpsnotenda

Gísli Jónsson:

Mér þykir það einkennilegt, að hæstv. forseti skuli meina hæstv. menntmrh. orðið, en taka til umræðu mál, sem alls ekki er á dagskránni. Mér þykir hæstv. forseti vera orðinn allröggsamur í forsetastóli. Ég krefst þess, að umr. um 97. málið haldi áfram og forseti neiti ekki ráðh. um orðið.

Síðar á fundinum var umr. enn fram haldið.