02.04.1946
Sameinað þing: 36. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í D-deild Alþingistíðinda. (4331)

97. mál, afnotagjald útvarpsnotenda

Þorsteinn Þorsteinsson:

Mig langar til að bera fram þá fyrirspurn við hæstv. forseta, hvort ekki er hægt að afgr. og ganga til atkv. um 1. dagskrármálið (afnotagjald útvarps). Það er búið að vera nálægt 4 mánuði í þinginu, og óska ég því eftir, að afgreiðsla þess verði nú ekki lengur látin dragast.