29.04.1946
Sameinað þing: 44. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 388 í D-deild Alþingistíðinda. (4394)

210. mál, herstöðvamálið

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég er ánægður með það, að það kom skýrt fram hér í umr. að það var rétt, sem ég benti á, að enn þá skortir Alþfl. að taka skýlausa afstöðu. Hins vegar hefur það komið fram, að frá upphafi þessa máls, frá því að fyrstu orðsendingar komu hingað um þetta mál, hefur Sósfl. tekið sína afstöðu þannig, að enginn gat á henni villzt.