29.04.1946
Sameinað þing: 44. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í D-deild Alþingistíðinda. (4405)

210. mál, herstöðvamálið

Menntmrh. (Brynjólfur Bjarnason):

Hv. þm. kemur sér hjá því að svara fyrirspurn minni. Hver er afstaða Alþfl.? Hann getur ekki svarað þessu nú og gat ekki svarað því í haust. Afstaða Sósfl. hefur hins vegar verið skýrt mörkuð frá upphafi. Svar hans hefur alltaf verið afdráttarlaust nei.