29.10.1945
Neðri deild: 18. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í C-deild Alþingistíðinda. (4438)

43. mál, landshöfn í Þórshöfn

Flm. (Björn Kristjánsson) :

Ég vil aðeins þakka hæstv. ráðh. fyrir vinsamlegar undirtektir í þessu máli. Ég er ekki á móti því, að þetta verði athugað, heldur tel ég þennan stað hafa þá sérstöðu, að ástæða sé til fyrir ríkið að grípa þarna inn í, þar sem svona lítið sveitarfélag getur ekki ráðizt í fyrirtæki sem þetta. — Ég hef svo ekki meira að segja um þetta að sinni.