29.04.1946
Neðri deild: 129. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í C-deild Alþingistíðinda. (4531)

50. mál, ríkisborgararéttur

Stefán Jóh. Stefánsson:

Ég er óánægður með afgreiðslu málsins frá Ed. En með því að forseti Ed. hefur lýst því yfir, að síðasti fundur hafi verið haldinn í hv. Ed., sé ég mér ekki fært að samþ. þessa brtt. Og með tilvísun til greinargerðar hv. þm. V.-Húnv. varðandi atvinnuleyfi viðkomandi manna segi ég nei.