23.04.1946
Sameinað þing: 37. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í D-deild Alþingistíðinda. (4551)

137. mál, kaup á skipinu Pétursey

Pétur Ottesen:

Herra forseti. Hv. þm. Barð. vefengir afgreiðslu þessa máls, en afgreiðslan liggur nú samt í þessu nál., og ég hélt, að þeir væru menn til þess að standa við þetta. Og ég verð að segja, að þær umr. um, að við séum ekki þess umkomnir að varðveita eitt gamalt áraskip, þær umr. eru Alþ. Íslendinga og íslenzku þjóðinni til skammar.