27.02.1946
Neðri deild: 76. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í C-deild Alþingistíðinda. (4686)

132. mál, tollskrá o.fl.

Pétur Ottesen:

Þann 6. des. s. l. var vísað til fjhn. frv., sem ég flutti, um breyt. á tollskrá, þess efnis, að niður verði felldir tollar af pappírsumbúðum um hraðfrystan fisk. Enn sem komið er hefur ekki bólað á afgr. þessa frv. hjá n., og vildi ég þess vegna vænta þess, að svo gæti orðið hið allra fyrsta, og heiti ég á stuðning hæstv. forseta í því efni, ef með þarf.