08.02.1946
Efri deild: 62. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í C-deild Alþingistíðinda. (4946)

33. mál, jarðræktarlög

Eiríkur Einarsson:

Herra forseti. Það er nú svo, að í n. þeirri, sem hefur haft frv. þetta til meðferðar, hefur ekki orðið niðurstaða og því síður verið skilað nál. af hálfu sumra nm. um frv. þetta. Og þar sem ég er meðal þeirra nm., sem þannig er ástatt um, en ég vildi hins vegar sýna lit á að gera grein fyrir afstöðu minni til frv., — og ég vildi náttúrlega gera það svo fljótt sem föng eru á, — þá vildi ég mælast til þess við hæstv. forseta, að mál þetta verði að þessu sinni tekið af dagskrá.