08.11.1945
Efri deild: 25. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í C-deild Alþingistíðinda. (5015)

75. mál, æskulýðshöll í Reykjavík

Flm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Mál þetta var til meðferðar í hv. d. á síðasta Alþ. og var afgr. þaðan til Nd., þar sem það dagaði uppi. Hef ég nú tekið það upp að nýju og vona, að því verði vel tekið í hv. d., þar eð hér er um gamlan kunningja að ræða.

Ég vil svo leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og allshn.