09.11.1945
Efri deild: 26. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í C-deild Alþingistíðinda. (5033)

77. mál, brúargerðir

Flm. (Gísli Jónsson) :

Ég hef hér á þskj. 104 flutt frv. um, að tekin verði upp á brúal. brú yfir Hvestuvaðal í Ketildalahreppi í Arnarfirði. Vegurinn þarna var tekinn í þjóðvegatölu 1943, en af vangá var brúin þarna ekki tekin inn á brúal., sem einnig var breytt á því ári. Er því nauðsynlegt, að þetta verði leiðrétt nú, og vænti ég þess, að samgmn., sem fær þetta mál til meðferðar, fallist á, að þessi leiðrétting verði gerð á brúalögunum.

Ég sé ekki ástæðu til þess að segja meira um þetta mál á þessu stigi, en óska, að frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til hv. samgmn.