15.11.1945
Sameinað þing: 7. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í D-deild Alþingistíðinda. (5167)
79. mál, rafveitulán fyrir Búðahrepp
Flm. (Eysteinn Jónsson) :
Herra forseti. Með þessari till. er farið fram á, að ríkisstj. sé heimilt, gegn þeim tryggingum, sem hún metur gildar, að ábyrgjast fyrir hönd ríkissjóðs lán fyrir Búðahrepp til raforku hreppsins. Þetta er þó bundið því skilyrði, að ráðuneytið samþykki þann mann, sem verður fenginn til þess að hafa yfirumsjón þessara framkvæmda. Það hafa verið gerðar áætlanir um þetta, sem sýna, að 3 leiðir eru til þess að framkvæma þetta. En ég geri ráð fyrir, að sú leið verði farin að setja upp nýtt innanbæjarkerfi.
Það er óhjákvæmilegt að ráðast þegar í þessa breytingu sökum raforkuskorts.