02.03.1946
Sameinað þing: 30. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 508 í D-deild Alþingistíðinda. (5268)

180. mál, fullnaðarrannsóknir fallvatna

Flm. (Gísli Sveinsson) :

Herra forseti. Ég læt mér nægja að vísa til grg., sem fylgir þessari þáltill. á þskj. 462. Þessi þáltill. er fram komin jafnhliða þeirri þáltill., sem nú var verið að samþ. til síðari umr. og vísa til n., sem er 182. mál, um virkjun Sogsins o. fl., og má segja, að þessi þáltill., sem hér liggur fyrir, sé borin fram sem nauðsynleg viðbót við þá þáltill., sem afgr. var hér áðan, og fleiri áskoranir, sem hafa verið frammi á undanförnum þingum og eru enn. — Ég vil ekki bæta nú að þessu sinni neinu sérstöku við það, sem fram er komið um þessi mál yfirleitt, en óska þess, að þessi þáltill. verði að lokinni fyrri umr. látin ganga til hv. fjvn.