15.03.1946
Sameinað þing: 33. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í D-deild Alþingistíðinda. (5285)

185. mál, útsvör

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég get vel fellt mig við það, að till. gangi til n., því að ég býst við, að þar fái hún hægt andlát. En mér finnst það ótækt, að skipuð sé mþn. í hvert skipti, sem breyta þarf lagagrein.