27.04.1946
Sameinað þing: 42. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í D-deild Alþingistíðinda. (5330)

208. mál, björgunarskúta Vestfjarða

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vildi mælast til þess, að hæstv. forseti frestaði umr. Ég vil benda á, að það hafa verið stöðugir fundir síðan kl. 9,30 í morgun, og boðaður hefur verið fundur, sem á að standa til kl. 12, og einnig fundur í Sþ. eftir kl. 12. Það er því ástæða til, að hæstv. forseti fresti þessari umr., þar sem líka flestir þm. eru farnir heim.