22.11.1945
Neðri deild: 36. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í D-deild Alþingistíðinda. (5403)

20. mál, olíugeymar o.fl.

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Á öndverðu þingi flutti ég fyrirspurn til hæstv. atvmrh. um olíumál, en hún hefur ekki verið tekin á dagskrá enn þá, og vonast ég eftir, að það verði gert fljótlega, þar eð mig er farið að lengja eftir því, og vona ég, að hæstv. forseti athugi það.